Skattar skapa ekki verðmæti og meira frá skýrslu Amnesty
Spegillinn - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Þær tvær atvinnugreinar sem oftast eru nefndar þegar það þarf að ná pening inn í ríkiskassann eru sjávarútvegurinn og ferðaþjónustuna. Á síðasta ári sköpuðu þessar tvær atvinnugreinar meira en helming útflutningsverðmæta landsins. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, komu í hljóðver til að ræða stöðu þessara tveggja atvinnugreina. Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International birtu í gær skýrslu um rannsóknir sínar á hernaði Ísraelsmanna á Gasa. Meginniðurstaðan er sú, að Ísraelar séu að fremja hópmorð, það sem í daglegu tali er kallað þjóðarmorð, á Palestínumönnum á Gasa. Í inngangi að skýrslunni segir að á fyrstu tólf mánuðum hefndarstríðs Ísraela á Gasa hafi þeir drepið yfir 42.000 Palestínumenn, þar af yfir 13.300 börn, og sært yfir 97.000 til viðbótar.