Slow food, varist eftirlíkingar, málfarsmínúta og vísindaspjall
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Við forvitnumst um Slow food-hreyfinguna svokölluðu, en sú hugmyndafræði hefur breiðst út um allan heim. Það er viðhorf þeirra sem fylgja þessum lífsstíl að matur eigi að bragðast vel, hann eigi að vera laus við aukaefni og sem náttúrulegastur og sanngjarn á þann hátt að sá sem framleiðir matinn fái sanngjarnt verð fyrir vinnu sína og afurðir. Dóra Svavarsdóttir er formaður Slow food Reykjavík. Við ræðum við hana. Feik eða ekta? Það er yfirskrift sýningar í tengslum við Hönnunarmars sem nú stendur yfir. Á sýningunni er hægt að bera saman vörur sem ýmist eru falsaðar er ekta og velta fyrir sér hvort er hvað. Vodkaflaska, lampi, töskur, úr, skór, símar og fleira er þar til sýnis. Hugverkastofan, Epal og React - alþjóðlegt samstarfsnet fyrirtækja gegn fölsunum, standa að þessari sýningu. Við kíkjum á sýninguna og spjöllum þar við Borghildi Erlingsdóttur forstjóra Hugverkastofunnar og Þórunni Sigurðardóttir frá React. Við heyrum málfarsmínútu og svo kemur Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjall.