Safnarölt í Reykjanesbæ og hafbotnsrannsóknir
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Samfélagið heilsar úr saumavélaherbergi byggðarsafnsins í Reykjanesbæ, sem er staðsett í Duus-safnahúsinu í Keflavík. Um helgina er haldin sérstök safnahelgi á Suðurnesjum og í tilefni þess röltum við safnanna á milli og fræðumst um starfsemi þeirra, safnkosti og jafnvel hugmyndafræði. Við fáum til okkar Höllu Kareni Guðjónsdóttur, verkefnastjóra safnahelgar á Suðurnesjum, og Guðlaugu Maríu Lewis, menningarfulltrúa Reykjanesbæjar, ræðum um söfnin, menninguna og samfélagið á Suðurnesjum. Síðan ræðum við við Bryndísi Brandsdóttur, jarðeðlisfræðing hjá Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, um rannsóknir á hafsbotninum.