Ritskoðun barnabóka, Nóbelsverðlaun og risafurur
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Ritskoðun er ekki bara stunduð af stjórnvöldum í einræðisríkjum - hún er daglegt brauð á þúsundum íslenskra heimila, við rúmstokk barna. Er nauðsyn að ritskoða barnabækur eða óþarfi? Hversu langt á að ganga? Af hverju gerir fólk svona mikið af því? Samfélagið birti fyrirspurnir í nokkrum Facebook-hópum sem snúa að börnum, uppeldi og menntun og fékk á fimmta tug svara frá foreldrum og kennurum sem ritskoða bækur. Við ræðum líka við Evu Mattadóttur, markþjálfa og rithöfund en hún hefur mikið velt ritskoðun barnabóka fyrir sér. Á þessum tíma árs, ár hvert, kemur í ljós hverjir hljóta hin virtu Nóbelsverðlaun fyrir alls konar vísindi og listir og svoleiðis. Á mánudaginn var tilkynnt að tveir bandarískir vísindamenn myndu hljóta Nóbelsverðlaunin í læknisfræði. Þeir uppgötvuðu míkróRNA, sem hjálpar vísindamönnum að skilja hvernig gen virka í líkamanum. Til að hjálpa okkur að skilja hvað míkróRNA er, ætlar Edda Olgudóttir, vísindamiðlari Samfélagsins, að kíkja til okkar í vísindaspjall. Og síðan fáum við pistil frá Esther Jónsdóttur, ungum umhverfissinna. Í honum fjallar hún um risafurur og tímann, tengingar og samfélög. Tónlist í þætti: MGMT - Mother Nature. ELÍN HALL - Rauðir draumar.