Ósamþykktar meðferðir við ópíóíðafíkn, vinnumansal, misneyting á vinnumarkaði, matvendni
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Í dag ræðir Samfélagið við föður ungs manns sem hefur verið í óhefðbundinni, og í raun ósamþykktri, viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn. Sonurinn fær uppáskrifuð morfínlyf frá lækni í skaðaminnkandi tilgangi, og faðirinn segir að meðferðin hafi haft gríðarleg áhrif á líf sonar síns og fjölskyldu sinnar. Í gær fjallaði fréttaskýringaþátturinn Kveikur um veruleika erlendra verkamanna á Íslandi. Fjöldi þeirra býr við harðræði og eru jafnvel fórnarlömb vinnumansals. Við fjöllum um vinnumansal í dag. Fáum til okkar Maj-Britt Hjördísi Briem, lögfræðing hjá Samtökum atvinnulífsins. Samtökin ætla að halda málþing um vinnumansal á morgun, ásamt ASÍ. Og síðan fáum við til okkar Eddu Olgudóttur, vísindamiðlara Samfélagsins, í hið vikulega vísindaspjall. Í dag fjallar hún um matvendni í börnum.