Hafsbotninn í brennidepli, svipmynd af Textílmiðstöðinni á Blönduósi

Samfélagið - Podcast készítő RÚV

Kategóriák:

Samfélagið heilsar frá tveimur landshlutum í dag. Arnhildur er stödd í Öskju, sem er heimili náttúruvísindanna í Háskóla Íslands. Þar er í gangi haustráðstefna jarðfræðafélags Íslands. Hafsbotninn hefur verið í brennidepli undanfarið - kortlagning hans, námugröftur á hafsbotni - þýðing hans fyrir lífríkið og ég ætla hér á eftir að spjalla við Anett Blischke, jarð- og jarðeðlisfræðing hjá íslenskum orkurannsóknum og Tinnu Jónsdóttur, jarðfræðing og verkefnastjóra Auðlindaeftirlits Orkustofnunar. Pétur sendir hins vegar út frá Textílmiðstöðinni á Blönduósi. Við fáum innsýn inn í starfsemina hér; kannski smá svipmynd af samfélaginu hér í kringum miðstöðina. Þar eru sauðfjárbændur að spinna þræði úr alls konar ull, útlenskir listamenn í resedensíum að skapa list og fræðifólk að rannsaka og kenna og pæla. Við ræðum líka við Erlu Arnardóttur, forstöðumann Textílmiðstöðvarinnar. Tónlist: PRINS PÓLÓ - Læda slæda. THE KINKS - Dedicated Follower Of Fashion.