Fuglastríð í Garðabæ og bárujárn
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Við kynnum okkur fuglastríðið í Garðabæ, stríð sem einna helst beinist gegn Sílamáfnum. Fyrir nokkrum árum fóru að berast fréttir af því að mávar héldu vöku fyrir íbúum í Sjálandshverfi og víðar, réðust jafnvel á börn á göngustígum. Bærinn hefur ráðist í aðgerðir vegna þessa og íbúar stofnað sérstakar mávasveitir. Arnhildur Hálfdánardóttir ræðir við Eirík Sigurðsson sem er meðlimur í einni slíkri mávasveit og Ástu Sigrúnu Magnúsdóttur, samskiptastjóra í Garðabæ. Bárujárn hefur þótt góð klæðning á hús hér á landi í langan tíma, síðan kom steining, sem hefur virkað vel, en undanfarin ár hafa álplötur í öllum regnbogans litum tekið völdin. Við eru plötuð með mismunandi klæðningum á stórum byggingum, þannig að þau líta út eins og mörg hús. Við fórum í bæinn og veltum fyrir okkur misjöfnum klæðningum bygginga með Magneu Guðmundsdóttur arkitekt. Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingur flutti pistil í lok þáttar. Umsjón: Fanney Birna Jónsdóttir og Lísa Pálsdóttir. Tónlist frá útsendingarlogg 2024-09-05 THE ROLLING STONES - Not Fade Away. Heiða Árnadóttir Söngkona, Gunnar Gunnarsson Píanóleikari - Ein.