Framtíð gervigreindar á Íslandi, undirbúningur fyrir svartan föstudag, samkynhneigð hjá hestum
Samfélagið - Podcast készítő RÚV
Kategóriák:
Með nýrri aðgerðaráætlun stjórnvalda um gervigreind er markmiðið að stuðla að því að Ísland verði leiðandi í ábyrgri nýtingu gervigreindar og skapi tækifæri, velmegun og framfarir fyrir alla landsmenn. Átætlunin var birt í samráðsgátt fyrr í þessum mánuði og fjöldi umsagna hefur borist, meðal annars frá Samtökum um mannvæna tækni. Í dag setjumst við niður með Gamithru Marga, meðstofnanda samtakanna, og ræðum aðeins um þessa aðgerðaráætlun, um erindi sem hún hélt fyrir framtíðarnefnd Alþingis á dögunum, og gervigreindina almenn. Og í síðari hluta þáttarins ætlum við að ræða aðeins um atferli hesta. Við fáum reglulega til okkar vísindamenn sem rita svör á Vísindavefinn, og í dag kemur til okkar Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir, og svarar því hvort til séu dæmi um samkynhneigð hjá íslensum hestum. Síðan fáum við pistil frá Stefáni Gíslasyni um svartan föstudag.