Föt, tíska og umhverfið

Samfélagið - Podcast készítő RÚV

Kategóriák:

Í dag fjöllum við um föt. Við fjöllum um föt sem við kæðumst og föt sem við kaupum og klæðumst aldrei, og áhrif þeirra á umhverfið. Síðasta áratug hafa fatahönnunarnemendur í Listaháskóla Íslands hannað og framleitt föt úr óseljanlegum fötum úr fatasöfnun Rauða krossins, og í tilefni þess var haldið málþing um tísku og umhverfi í Norræna húsinu, á vegum LHÍ og Umhverfisstofnunnar. Við ræðum við kennara, sérfræðinga og nemendur sem tengjast verkefninu og ræðum um áhrif tískunnar á umhverfið. Tónlist í þættinum: THE TEMPTATIONS - Get Ready.